Beint í efni
Vínrauð blómaskreyting í hvítum vasa á dúkuðu veisluborði, kampavínsglös og kökudiskur við hliðina

Viðburðir

Skreytingar sem setja tóninn

Fyrir brúðkaup, ráðstefnur, sölukynningar og önnur tilefni. Við sníðum skreytingarnar að rýminu, stemningunni og tilefninu.

Þú finnur okkur hjá

Brúðkaup

Jafn falleg í lokadansinum og þegar fyrsti gesturinn kom.

Borðskreytingar fyrir gestaborðin, stærri skreyting við altarið eða bogann og oft skreyting við myndatökustaðinn. Við setjum upp áður en gestirnir koma og sækjum daginn eftir.

Fá tilboð
Vínrauð blómaskreyting í ljósum vasa á dúkuðu veisluborðiHá blómaskreyting á súlu í veislusal
Skreyting við ræðupúlt á FKA-viðburðiBlómaskreytingar á sviði fyrir FKA-viðburð

Ráðstefnur og árshátíðir

Sviðið, púltið og anddyrið.

Borðin, barinn og anddyrið. Silkiblóm henta vel þar sem borðin eru þröng og umferð mikil.

Fá tilboð

Sölukynningar og opnanir

Skreyting sem dregur augað að vörunni.

Opnanir, vörukynningar, afmæli og fundir. Segðu okkur frá deginum og rýminu og við gerum tillögu.

Fá tilboð
Rósaskreyting á sýningarstandi hjá DanólRósir á svörtum sýningarstandi í verslun hjá Danól

Svona gengur það

  1. Sendu okkur dagsetninguna

    Sendu okkur dagsetningu, stað og það sem þú sérð fyrir þér. Því fyrr, því betra.

  2. Tillaga og verð

    Þú færð tillögu með blómum, vösum og fjölda skreytinga ásamt verði. Ekkert er greitt fyrr en þú segir já.

  3. Við mætum og setjum upp

    Við komum með allt á staðinn og stillum upp áður en gestirnir koma.

  4. Við sækjum eftir viðburðinn

    Þú pakkar engu. Við sækjum skreytingarnar eftir viðburðinn.

Há blómasúla með dalíum, hortensíum og rósum í veislusal

Viðburðir

Segðu okkur frá deginum

Dagsetning, staður og fjöldi gesta duga til að byrja. Við sendum tillögu og verð.